MAREIKE GAST - LÍFRÆN RAFEINDATÆKNI Í HÖNNUN.
HAFNARHÚS, FIMMTUDAG 22. SEPTEMBER KL. 20
19.09
Yfirskrift fyrirlesturs Mareike Gast er: Þunn, sveigjanleg, litrík, gagnsæ, samfellanleg – Möguleikar prentaðrar lífrænnar rafeindatækni frá sjónarhóli hönnuðar. Fyrirlesturinn veitir yfirsýn yfir nýjustu þróun í prentun lífrænnar rafeindatækni og sýndar verða hugmyndir sem grundvallast á þessari tækni eftir hönnunarnema frá Burg Giebichenstein í Halle þar sem Mareike Gast var gestakennari árið 2011.
Rafleiðandi eða hálfleiðandi plast má prenta rétt eins og venjulegt blek. Þannig er unnt að prenta rafeindarásir, sólarrafhlöður, lífrænar ljósdíóður, rafhlöður og nema næstum eins og dagblöð.
Lífræn rafeindatækni, það svið efnis- og tæknirannsókna sem lofar hvað mestu, er sérstaklega áhugaverð fyrir iðnhönnuði þar sem hún skapar nýja möguleika sem umbylta ekki aðeins vörunum sjálfum heldur einnig meðhöndlun þeirra, samskiptum við þær og þeirri þjónustu sem þær veita.
Núna geta rafeindavörur orðið sveigjanlegar, gagnsæjar, litríkar, samfellanlegar, fisléttar og sjálfbærar hvað varðar orku og hreyfanleika.
Aðferðin kallar þó fram spurningar eins og hvort að með ódýrri tækni eins og prentun sé hægt að framleiða ódýrar einnota vörur og einnig spurningu um það hvernig prentaðar hágæðavörur líta út? Er hægt að móta sveigjanlegt undirlag eins og pappír eða málmþynnu með lífrænni rafeindatækni með hefðbundnum aðferðum og hver er útkoma þeirrar andstæðu? Hvernig samskipti á notandi við sveigjanlega rafeindatækni? Hvað ef prentuð lífræn rafeindatækni er endurnýtanleg eða lífbrjótanleg? Hvernig virka vörur sem eru sérprentaðar og hvernig líta þær út?
Fyrirlesturinn fer fram á ensku, hann er ókeypis og öllum opinn.
Sjá nánar á : http://www.mareikegast.de/



