NÝ SENDING AF SKYRKONFEKTI.
02.02Vorum að fá frá Rjómabúinu Erpstöðum sendingu af hinu ómótstæðilega skyrkonfekti. Hinn fullkomni eftirréttur.
Rjómabúið Erpstaðir er fjölskyldufyrirtæki í Dölunum þar sem heiðarleiki og gagnsæi eru undirstöðuþættir í framleiðslunni. Á býlinu búa mjólkurkýrnar við bestu hugsanlegu aðstæður og ráða tíma sínum sjálfar. Undir sama þaki framleiða bændurnir afurðir sínar af kostgæfni með það að markmiði að opna nýjar víddir í upplifun á mjólkurafurðum. Skyrkonfektið er þróað í samstarfi við Stefnumót hönnuða og bænda, rannsóknarverkefni Listaháskóla Íslands.



