Klapparstígur 33, 101 Reykjavík, Iceland
Tel: +354 552 2656

Weekdays 10.00 - 18.00, Saturdays 12.00 - 16.00

sigridur@sparkdesignspace.com

PAST

SECRET SHOP

21.01.11 – 23.03.11

Vöruhönnuðurnir Aamu Song og Johan Olin reka fyrirtækið Company í Helsinki. Þau hafa ferðast með búðina sína The Secret Shop eða Salakauppa víða um heim síðastliðin 5 ár.

Starfsemi Company spannar breitt svið, allt frá hönnun til framleiðslu, sölu og reksturs verslunar. Hugmyndafræði þeirra og vörur spretta úr hefðbundnu finnsku handverki sem þau glæða nýjum ljóma með kímni og innsýn í mannlega hegðun.

Aamu og Johan Olin halda fyrirlestur um verkefni sín í Listasafni Reykjavíkur fimmtudaginn 20. janúar kl. 20.00. Hönnuðurnir eru gestakennarar í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.