Klapparstígur 33, 101 Reykjavík, Iceland
Tel: +354 552 2656

Weekdays 10.00 - 18.00, Saturdays 12.00 - 16.00

sigridur@sparkdesignspace.com

PAST

ÞRÁÐUR

17.06.11 – 10.09.11

Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, opnar í Sparki ný sýning undir yfirskriftinni ÞRÁÐUR.  Hér koma saman tvær kynslóðir sem fást við skartgripagerð. Verk þeirra endurspegla ólíka aðferðafræði og gildismat en eiga samt sem áður margt sameiginlegt.

Dóra Guðbjört Jónsdóttir er áttræð og nam gullsmíði við Konstfackskolan í Stokkhólmi og Vereinigte Goldschmiede- und Kunstgewerbeschule í Pforzheim í Þýskalandi. Dóra tók við fyrirtæki föður síns, Gullkistunni, árið 1970 og hefur rekið það síðan. Hún hefur sérhæft sig í smíði á víravirki og er okkar fremsti fagmaður á því sviði. Nýlega hlaut hún sérstaka viðurkenningu frá Samtökum kvenna í atvinnurekstri auk þess sem Iðnaðarmannafélag Reykjavíkur valdi hana „Iðnaðarmann ársins 2011“ fyrir ómetanlegt starf í þágu gullsmíðagreinarinnar.

María Kristín Jónsdóttir er fædd árið 1977. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 af vöruhönnunarbraut. María Kristín er fulltrúi kynslóðar sem hefur tileinkað sér meira frelsi í verkefna- og efnisvali. Efniviður hennar er band sem formað er í einstaka skartgripi með aðferðum sem þekktar eru í hnýtingum auk nýrra aðferða sem María Kristín hefur þróað til að ná fram þeim formum sem hún sækist eftir. Skartgripirnir hafa tilvísun í hátíðar- og einkennisbúninga og búa meðal annars yfir þeim góða eiginleika að koma fólki í hátíðarskap. Það sama má einnig segja um skartgripi Dóru. 

Dóra Guðbjört Jónsdóttir is eighty ears old and still going strong. She studied at Konstfakcskolan in Stockholm and Vereinigte Goldschmiede- und Kunstgewerbeschule í Pforzheim in Germany. Dóra also learned from her father who ran the company Gullkistan until 1970 when Dóra took over the business and has been running it since. Dóra is the nations master in hand made filigree. Filigree is believed to originate in Byzantium and is known all over the world. It seems to have been introduced in Iceland early Middle ages and is used as part of the Icelandic national custom. The jewellery is passed on from one generation to the next. In 2011 Dóra received a special award from the Womens Business Association as well from The Association of Skilled workers for her greatly important work in the field of jewellery in Iceland.

María KristínJónsdóttir is born in 1977. She graduated from The Iceland Academy of Arts in 2003 from the department of product design. In her work she mixes the techniques of knots and macrame to create unique jewellery pieces. One can detect influences from the uniform culture of brass bands as well as a feeling of festivity and preciousness.